Uppgjör ferðarinnar partur 1

Fallegasti staðurinn

 

Koh phi phi eyjan við Thailand. Þessi eyja er án efa einn fallegasti staður á jarðríki. Þarna var m.a. myndin The Beach tekin upp. Maður siglir inn í lítin flóa þar sem eru klettar allt í kring og inn í honum er strönd.

  Asíuferð 040

Hér erum við að sigla að ströndinni  

Hér fyrir neðan er svo útsýnið frá ströndinni.

  Asíuferð 075    Asíuferð 068   Asíuferð 086    Asíuferð 092  

 

 

Ótrúlegasti staðurinn

Ancor Wat í kambódíu. Þar eru fullt af  mörg þúsund ára gömlum musterum. Þetta hér var lang flottast... svo flott að sumir héldu því fram að þetta væri tölvugert þó svo viðkomandi væri að horfa á það berum augum LoL Hvað sjáið þið mörg andlit ?

Asíuferð 777

Ógeðslegasti staðurinn

Phenom Phen höfuðborg Kambódíu. Vægast sagt viðbjóðslegur staður. Allt er skítugt og allstaðar eru ruslahaugar þar sem rotturnar skottast á milli og ekki hjálpar daunilla lyktin sem kemur af þessu öllu í 40 stiga hita. Við vorum í borginni í 3 daga meðan við vorum að bíða eftir visa til vietnam við tókum engar myndir örruglega að hræðslu við að láta ræna okkur. Við reyndum að fá kakkalakkalaust herbergi en það gekk upp og ofan og þurtum við því að sætta okkur við herbergisfélagana. Eitt skipti hefðum við þá viljað vera með mynda vél þegar risastór fíll sprangaði um göturnar innan um bílana og hjólin, það var ótrúlegt. Við vorum rosalega fegin að komast burt frá þessum stað.

 

Skelfilegasti atburðurinn 

Jet Ski ferð nr 2 +á Phuket. Þar var heldur betri öldugangur heldur en í jer ski ferð 1 á ko phangan. Um leið og við lögðum af stað kom risa alda og velti okkur í sjóinn og Helgi týndi sólglerugum sínum og eyðilaggði úrið sitt en við höfðum mestar áhyggjur að ná jetski sleðanum aftur og komast upp á hann og í gegnum brimið sem tókst. Þegar við vorum komin út á sjóinn var öldugangurinn aðeins minni en nóg til að við vorum smeyk við að gefa allt í botn eins og í ferð 1. Út undan mér sýnist mér ég sjá hákarlsugga en trúi ekki mínum eigin augum svo ég segi ekkert, á sama tíma segir Helgi " sástu uggann? " úff... þá fór hjartað heldur betur að slá hraðar. Í öllum öldugangnum lengst út á sjó og nú vissi maður að við máttu ALLS EKKI detta aftur í sjóinn þá yrðum við étin lifandi. Þetta var þegar við vorum búin að vera í c.a. 5 mínútur en við höfðum leigt jet skið í 40 mín Wink Þá kom ég auga á skýin sem voru að nálgast okkur. Þau voru bókstaflega svört og kom manni í huga að það væri að koma heimsendir. Við brunuðum um í c.a 2 mínutur í viðbót og þá voru skýin komin óþægilega nálægt og við tókum eftir að ströndin var að tæmast. Við drifum okkur þá í land stórskelkuð eftir 8 mínútna jet ski ferð og þá voru allir farnir af ströndinni og búið að stala bekkjunum og allir hlaupandi um allt í leit að skjóli.

Leðurblökuhellirinn var líka solldið skelfilegur. Í Víetnam fórum við í frumskógarferð og enduðum í leðurblökuhelli í miðjum skóginum. Maður sá ekkert í mykrinu í hellinum og var alltaf að detta um steina og dót og svo heyrðist í leðurblökunum Gasp í frumskógarferðinni var maður líka dálítið hræddur um að hitta snák, en leiðsögumaðurinn var með prik sem hann potaði í jörðina fremst til að athuga hvort þar væru snákar.

Setning ferðarinnar

“ Say no with smoking for your health”

Skilti á lestarstöðinni sem átti að benda til þess að reykingar væru óhollar fyrir heilsuna. En kom út "segðu nei með reykingum fyrir heilsuna"

Meira á leiðinni...


Í klípu

Jæja við héldum syngjandi glöð í 7. ferðina í sendiráðið á mánudaginn og vorum þvílíkt bjartsýn á að fá visad okkar til Kína og ætluðum að halda til Peking daginn eftir með flugi. Þegar við komum í sendiráðið fengum við umsóknina okkar til baka og var sagt að hypja okkur út úr sendiráðinu. Þegar við reyndum að spyrja hvers vegna við fengum ekki leyfi sögðuð þau að hótelið okkar hafi ekki verið staðfest !!  sem er ekki möguleiki þar sem bókuðum hótelið um leið og við ákváðum að fara í þessa ferð fyrir 9 mánuðum síðan og borguðum líka 10 % fyrirfram greiðslu. Einnig höfðum við nýlega hringt til Kína á hótelið okkar til að athuga hvort allt væri ekki í lagi, sem það var. Svo þetta var bara "afsökun" hjá sendiráðinu því það hefði verið mjög rasistalegt að segja upphátt það sem virkilega var í gangi þ.e. að útlendingar (sérstaklega hvítir) fá ekki leyfi til kína. Það var enginn af hvíta fólkinu sem var í sendiráðinu fékk leyfi ekki einu sinni strákur sem býr í Peking og á þar hús og allt. En ótrúlegt en satt fengu víetnamarnir og kínverjarnir stimplana sína í röðum. Ef við hefðum ætlað að prófa að sækja aftur um þá hefðum við þurft að fá leyfi lengur í víetnam sem tók 1 viku og kostaði $80 á mann og fara síðan með það í kínverska sendiráðið og bíða í aðra viku með það að fá svar. Fyrir utan það að við hefðum þurft að kaupa nýtt flug til kína og panta nýja gistingu þar sem það var útrunnið því við fengum ekki leyfið. Á þeim tíma hefðu ólympíuleikarnir líka verið að klárast!

jæja.... þá höfðum við ekki leyfi til að fara til kína og höfðum ekki leyfi til að vera lengur í víetnam, en áttum bæði flug til og frá kína !!! ekkert spes aðstaða að vera í . Við prófuðum að hringja í íslenska sendiráðið í kína sem sagði að hann gæti ekki hjálpað okkur og að hann hafi heyrt fullt af sögum af fólki í svipuðum aðstæðum og við. Hann sagði líka að það væri ekki mögleiki fyrir okkur að fá vísað núna þar sem það voru 2 daga í ólympíuleikana. Einnig fréttum við eftir á að það væri aðeins mögulegt að fá 7 daga vísa til kína sem er fáránlegt þar sem ólympíleikarnir eru 17 dagar.

Eftir 10 daga vinnu í ad fá vísa, 7 ferðir í kínverska sendiráðið, nokkur símtöl í íslenska sendiráðið i kína og nokur símtöl í  fulltrúa íSÍ,  eftir að hafa tapað alveg helling af fjármunum og fengið algjört ógeð á fasista og rasista framkomunni í fólkinu í sendiráðinu. Þá voru Peking bækurnar tvær sem við höfðum borið á bakinu alla ferðina settar í ruslið og við ákváðum við að gefa skít í þessa kínverja druslur og keyptum okkur far til íslands.

Við flugum frá víetnam til Thailands, thailandi til Indlands og Indlands til London og þaðan heim. Og í Indlandi var þvílíkt vesen, gaur tók brottfaraspjöldin okkar og vegabréfin og hvarf og við komust ekki í gegnum security. En á endanum rétt fyrir brottför kom hann til baka og fór með okkur og sagði okkur að finna töskurnar okkar, sem við gerðum og hlóðum á vagn. Hann vildi tryggja að þær færu í réttu flugvélina! gott mál! ennn..... ein þeirra fór ekki í flugvélina. Hvernig gat hann klúðrað þessu! Taskan sem týndist var full af dóti sem við höfðum keypt á markaðnum rétt áður en við fórum full af gjöfum og dálitlu af Nike dóti þar sem við misstum okkur aðeins í nike búð sem sárabót fyrir að missa af ÓL.

Við sögðum að sjálfsögðu engum frá því að við værum að koma heim og fengum að bregða hverjum ættingjanum á fætur öðrum :) Við fórum beint á bílasölu og keyptum okkur bíl og brunuðum norður yfir heiðar í brúðkaup. Bestu viðbrögðin hafði brúðguminn Pétur frændi sem missti andann og var stutt frá því að kafna þegar við mættum óvænt í brúðkaupið Smile

Það eru margir kostir líka við að koma aðeins fyrr heim, og auðvitað lítum við bara á björtu hliðarnar. Þessi ferð var alveg frábær í alla staði og verður okkur ógleymanleg. Fyndið að við ákváðum að fara í í ferðina í leiðinni þegar við færum á óL.  Þetta var mjög snöggur og óvæntur endir á ferðalaginu og erum við ennþá að átta okkur á því að því sé lokið. En aftur á móti var yndislegt að koma heim í kuldann úr 35-40 stiga hita og allt að 100 % raka í 15 stiga hita og kvef :) Engir kakkalakkar, eðalur, moskító flugur og ekki fólk allstaðar sem maður lítur ( semer oftast að reyna að svindla á manni) Að fá íslenskan mat og vatn er ómetanlegt og fyrir utan það hvað landið okkar er hreint og fallegt. Við elskum ísland mun meira eftir þetta ferðalag og kunnum að meta ýmislegt sem okkur fannst áður sjálfsagt, eða jafnvel ókostur eins og kuldinn.

Eigum ennþá eftir nokkrar ferðasögur inni og að vita nema við skellum þeim hér inná :) Á milli þess sem við horfum á ÓL í sjónvarpinu Smile

Kveðja Rut og Helgi

 


Myndir fra vietnam

Hae nu er eg loksins buin ad setja nokkrar myndir inn.

Vid vorum ad koma ur 3 daga ferd um Halong bay tar sem vid silgdum um og bordudum og svafum i batnum Vid forum a kajak, hjoludum um eyjurnar, forum i gonguferd i frumskoginum og skodudum risakongulaer og fl. Vid komum vid a apaeyju tar sem eg missti mig adeins i ad taka myndir af opunum :)

 Her eru myndirtegar vid forum a hersafn i ho chi minhcity

A hersafni i Vietnam   

 

 Her er mynd sem er tekin ur risastorum helli sem var a einni eyjunni i halong bay og utsyni ut ur hellinu, yfir smahluta af Halong bay. I Halong Bay eru um 1600 eyjar.
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
A apaeyjunni voru slatti af villiopum sem voru forvitnir og komu naer strondinni tegar tad kom folk. Opunum var ekkert alveg sama um ad hafa folk tarna og reyndu stundum ad faela tad i burtu med tvi ad stokkva a tad eda a tre nalagt teim og hrissta tad og oskra a folkid. Eg reynda ad halda mig a agaetri fjarlaegd og tok myndir eins og brjalaedingur.
Her koma synishorn af apamyndunum Wink
 
 
 
 
Matartimi hja tessum opum :) 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
  
 
 
 
 
 
 
 .
 
 
 


 
Apabarnid langadi mjog i avoxtinn sem mamman var ad borda og reyndi hvad eftir annad ad teygja sig i hann til ad fa bita en mamman tok alltaf hendurnar a apabarninu fra  
 
 
 
 
 
 

 
 
 
 
 
 
 
En eftir mikla barattu fekk hann ad fa einn bita  Smile 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 Og svo fekk hann ser mjolkur- sopa  
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
  
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 MG 2293  
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
  pos
 
 
Mannapi LoL 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Ja og her er midi sem var i batnum, ef tid getid sagt mer hvad hann tydir ta erud tid snillingar Smile
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kvedja fra apalandi :)
 
 

 


Milljonamaeringar i vietnam

Ja i vietnam erum vid milljonamaeringar hehe.... 1 milljon dong (gjaldmidillinn) er um 4800 kr. Svo vid erum med fullt veski af hundrad tusund dongum :)  Cool

Vid erum nu komin til Hanoi hofudborgar Vietnam, vid hefdum viljad vera lengur Hoi an sem var alveg yndislegur litill baer en vid turftum ad koma ti Hanoi til ad fa visad (leyfi) til Kina. Tad er buid ad vera heljarinnar vesen og er nutegar buid ad kosta mikla tolinmaedi,mikinn taxapening, fyluferdir og 6 ferdir i kinverska sendiradid. Helgi kallar ta fasista sem vinna tar en teir eru alls ekki ad gera manni audvelt fyrir ad fa visad.

I hvert skipti tuftum vid ad bida i bidrod i tvilikum hita og tegar kom ad okkur ta var okkur sagt:

1. ferd fengum blad til ad fylla ut

2.ferd komum med bladid og ta vantadi passamynd svo vid forum a ljosmyndastofutil ad redda tvi

3.ferd ta sogdu ad vid tyftum ad hafa flugmida og hotel upplysingar med

4. Ta komumst vid alla leid inni sendiradid og meira ad segja ad gjaldkeranum en hann vildi ekki tala vid okkur ad tvi vid hofdum ekki bokad far fra Hanoi til Kina sem vid vorum buin ad reyna ad kaupa en gatum ekki bokad af tvi vid hofum ekki visad inni i Kina!! Disess......

5. Ta var buid ad loka....! fyluferd !Pinch

6. ta var ferdakrifstofa sem hjalpadi okkur ad boka flug bara til ad fa visad... turftum ekkert ad borga! Bara midi fyrir sendiradid ! En i tetta skipti var tekid vid umsokinni og tad tekur 4 daga ad fara yfir allt og akveda hvort ad vid faum leyfi ! Sem vonandi gerist tvi ad vid tufum ad fara fra vietnam daginn eftir tvi vid hofum ekki leyfi til ad vera lengur i vietnam! svo vid krossum fingur ad tetta virki :)

I sendiradinu voru teir lika med tvilika staela folk matti ekki fara inn ermalausum bol ne i flipflops skom en tad matti fara i sandolum. Folkid inni i sendiradinu ser bara i hausinn a manni svo tad sa ekki einu sinn hvernig skom madur var i. En nei folkid i flipflops var rekid i burtu. Angry

Tetta var svo faranlegt ad geta ekki pantad lestarmida af tvi vid hofdum ekki visa og geta ekki fengid visa af tvi madur atti ekki lestarmida. Svo var lika malid ad vegabrefin eru i sendiradinu og tegar vid forum ad saekja leyfid ta turfum vid ad borga 100 dollara. Til ad fa dollara tarf ad fara i banka og syna vegabref...sem er ta i sendiradinu...!!!!!Angry  kannski ad fasistar seu retta ordid...

Ja og vid erum buin ad fa mida a alla taekwondo atbudina a olympiuleikunum GrinGrinGrin jibbi...... og liks mida a adra atbudi...sem er rosa gott ef vid faum leyfi til ad koma inn i Kina :)

jaeja a morgun aetlum vid ad fara i 3 daga ferd ad skoda Halong bay, fara tar um a kajak og hjolum og njota lifsins Cool

Yfir og ut

 


Vietnam

Hae hae

 Nuna erum vid buin ad vera i 6 daga i vietnam og okkur likar mjog vel. Vietnam er mjog fallegt land tad sem vid hofum sed af tvi. Fyrst vorum vid i hoi chin min city i nokkra daga og tokum svo lest til hoi an sem er litill kruttlegur baer.Hoi an er oft kalladur "baerinn sem madur laetur sersauma allan fjandann a sig tvi tad kostar ekki neitt" svo vid byrjudum a ad fara og finna okkur rettu budina en tad eru um 400 budir sem sersauma baedi fot og sko. Vid letum ekki deygan siga og pontudum okkur nokkur fot. Vid slepptum okkur adeins tvi tetta var allt svo odyrt. Vid urdum svo godir vidkiptavinir ad folkid sem a budina baud okkur i mat.

I dag leigdum vid okkur hjol og hjoludum um allt thorpid ad skoda. Tad var alveg aedislegt en rosalega heitt og sveitt :)Nuna erum vid ad fara  i vietnamska matarbodid okkar og ad mata fotin sem var verid ad sauma a okkur. :)

A morgun tokum vid svo lest ti Hanoi sem er hofudborgin og tar turfum vid ad fa okkur leyfi til ad fa ad fara inn i Kina og kaupa lestarmida tangad. Svo eru tad Olimpiuleikarnir og tar a eftir okkar astkaera island sem enginn veit hvar er :) hehe... er buin ad teikna heiminn fyrir folki nokkrum sinnum til ad sina teim hvar island er og sina teim ad island er ekki irland ! hehe...

Allir ad kvitta :) tad er svo gaman ad fa kvedjur og sja hverjir eru ad lesa :)

Set fljotlega nokkrar myndir inn Kvedjur fra Vietnam


Kakkalakkar og aparæningjar

Kambodía var mjög áhugavert land. Við tókum rútu frá Bangkok i Thailandi til Siem Riep  í Kambódíu. Við landamærin þurftum við að taka dótið okkar og ganga yfir og það kom brjáluð rigning í raun ætti að vera annað orð yfir rigningu hér þar sem þetta er allt annað heldur en úðinn sem er á íslandi. Við landamærin var maður strax var við hvað Kambódía er mun vanþróaðri og fátækari en Thailand. Krakkarnir komu hlaupandi að okkur og báðu um mat eða pening. Eftir að hafa komist yfir landamærin tók við 5-6 klst ferð í elstu og ónýtustu rútu sem við höfum á ævinni séð. Já og ekki voru vegirnir betri við fórum 114 km á 5-6 klst. !!

 MG 1649

Þegar við vorum í rútunni lásum við í ferðabókinni okkar að maður ætti alls ekki að taka rútu frá Bangkok til Siem Riep vegna þess að þeir myndi reyna að láta ferðina vera eins óþægilega og hægt væri til að maður yrði yfir sig þreyttur eftir ferðina og færi beint á næsta hótel þegar hún stoppar. Hótelið borgar rútuköllunum fyrir það. Einnig stóð að flugfélagið sem flýgur þarna á milli borgi stjórnmála mönnum fyrir að laga ekki vegina til að fleiri fljúgi á milli. Tað var mjög hjálplegt að lesa þetta í ónýtu rútunni á ónýtaveginum ....eftir það ákváðum við að lesa okkur til um staðina ÁÐUR en við legðum af stað Smile 

Nálægt Siem Riep skodudum við Angkor musterin, alveg magnada staði  þar sem voru musteri um allt sem voru byggð fyrir mörg hundruð árum.  Það var alveg rosalega flott að sjá þetta og Helgi vildi stundum meina að þetta væri tölvugert Cool svo flott var þetta, en við tókum heilan dag í rölta á milli og skoða.

 MG 1705

 MG 1711        MG 1768

Þar vorum við næstum því rænd af apa !!!  hehe... Hann náði töskunni okkar og fór að týna úr henni dót og þefa af því. Ef við komum nær honum þá hvæsti hann á okkur og við eðlilega hrædd við að koma of nálægt honum (muniði ekki eftir Outbreak?) Þetta var frekar stór villiapi og eitt eða tvö augnablik vorum við mjög hrædd um að hann myndi hlaupa í burtu með töskuna okkar sem innihélt mjög dýrar myndavélalinsur,nýja símann hennar Rutar og VEGABRÉFIN okkar Gasp  Ætli einhver hefði trúað okkur þegar við myndum reyna að halda því fram að api hefði stolið vegabréfunum okkar? Grin (Hundurinn át heimaverkefnin)

 MG 1663  MG 1669  

 

Daginn eftir fórum við að skoða the floating villige sem er mjög fátækt þrop sem er byggt á bátum á vatni.

 MG 1820

 MG 1858

 MG 1871

 

 MG 1889

 

 

Allstaðar sem við komum í Kambódíu voru lítil sæt börn sem eru mjög frakkir sölumenn og reyna að selja manni póstkort, flautur, armbönd, bækur og allskins dót og þau sættu sig alls ekki við No thank you og héldu áfram og eltu mann um allt. Þetta reyndi stundum mjög á þolinmæðina þar sem þau eru svo mörg og sum segjast ekki eiga foreldra og önnur segjast vilja fara í skóla eða að þau eigi ekki fyrir mat og þau reyna og reyna. Það var líka mjög algeng sjón að börnin voru haldandi á ungabörnum að betla til að fá meiri samúð. Oftar en ekki voru foreldrarnir að slaka á í felum meðan börnin voru að sjá fyrir peningum. Ef maður ætlaði að vera góður og kaupa eitthvað þá vildu þau bara að maður keypti meira og meira og öll hin börnin komu og reyndu að selja manni líka svo það var ekki hægt annað en að segja nei. Reyndar var ein stelpa sem ætlaði að segja mér hver væri höfðuborg íslands ef ég myndi kaupa armbönd af henni ég var næstum búin að kaupa af einskærri forvitni hvort hún vissi hver höfuðborgin væri. Hér í Asiu veit nær enginn að Ísland sé til sumir halda að við séum að segja Írland en aðrir ákveða bara að við séum þjóðverjar.

   MG 1690      IMG 1781

 

Næst fórum við til Phenom Phen höfuðborgar Kambódíu. Þetta var í hreinskilni sagt ógeðslegasti, sóðalegasti og viðbjóðlegasti staður sem við höfum á ævinni komið á. Maður gekk frekar á götunni og vonaði að enginn keyrði yfir mann heldur en að ganga í úldnandi ruslahaugunum á gangstéttinni sem voru fullir af feitum rottum og óhugnalegum gömlum körlum. Við reyndum ad fremsta megni að fá herbergi án kakkalakka en tað gekk mjög illa.  Ef það eru ekki maurar í herbergjunum þá eru eðlur, ef ekki eðlur þá mosqito sem eru að vinna eftir strangri áætlun með að éta okkur upp til agna ef ekki moskító þá kakkalakkar.... hvað kemur næst.. ? Skárst af þessum dýrum voru eðlurnar því þær borðuðu flugurnar og földu sig fyrir okkur svo við tókum lítið eftir þeim.

Við stoppuðum 2 daga í þessari borg meðan við vorum að bíða eftir leyfi til að fara til Víetnam. Nú erum við komin i Hoi Chi minh sem er borg í vítenam og erum mjög fegin að vera sloppin frá Kambódíu Smile

 MG 1902

Kveðja til Íslandsins okkar sem við erum nú farin að sakna pínu og meta mun betur að hafa ekki öll þessi skordýr og það verður svoooo gott að koma í kuldann! við komum heim eftir mánuð.

 

 

 


Kambodia

Hae

Allt gott ad fretta og allt i godu standi erum a leid til Vietnam a morgun. Bloggum bradum og setjum myndir tegar vid komumst i betri tolvur. Vildi bara lata ta vita sem voru farnir ad hafa ahyggjur af okkur  Cool

 Kvedja Rut og Helgi i kakkalakka Kambodiu


Draumaland...

Í dag fórum við í Rosalega ferð. Við fórum að skoða eyjuna ko phi phi sem er eyjan þar sem myndin The Beach var tekin upp. Þetta var alveg rosalega fallegur staður, ef ekki bara sá fallegasti sem við höfum komið á. Helgi var vildi nú bara kaupa alla eyjuna...

Ko phi phi      Ko phi phi

Við fórum á nokkra staði á eyjunni og fengum að gefa fiskunum og snorkla og skoða þá, rosalegg fallegir og litríkir fiskar. Ég náði einni góðri mynd af þeim... næstum eins og póstkort Smile

   Snorkl

Við komum líka við á apaströnd þar sem var fullt af villiöpum sem voru samt pínu gæfir svo það var hægt að rétta Þeim ávexti Cool

Apinn

hehe... þessi var pínu frekur... spurning hvort honum leyst betur á buxurnar hans Helga eða
bananann sem hann hélt á ?

 

Þessi var mjög sáttur með sinn bananna og vandaði sig við að taka hýðið af Smile

Sáttur

Apamamma og apabarn...

 

Þessi mynd er tekin frá veitingarstaðnum sem við vorum að borða á.... flott útsýni Smile

fallegt...  

 

Þetta var alveg hreint mögnuð ferð og við tókum alveg helling af flottum myndum.

Já og í gær fórum við í parasailing... það var rosa gaman þá er maður festur í fallhlíf og bundin við bát sem spýtist með mann út um allt og maður er bara lengst upp í loftiinu og nýtur útsýnisins eins og fuglinn fljúgandi.

Kveðja til allra heima

Sérstaklega til afmælispæja morgundagsins Heiðu, Hrefnu og Telmu Kissing


Góður bolur

Erum enn á Phuket. Fínn stadur og alltaf eitthvad ad gerast. Erum á hóteli sem er fáránlega ódýrt en fínt. Skoðuðum verðlistann hjá þeim og venjulega er herbergið okkar ad kosta 4-5 sinnum meira. Næstum 10 sinnum meira á high seasoni. Þegar vid vorum að skoða sáu þau að við vildum bara fá verð til samanburðar þannig að þau gerðu súperdíl við okkur enda greinilega ekki mikið um gesti hjá þeim akkúrat núna.

Allavega. I gær fórum við á ströndina og það var nice. Á leiðinni þangað sá Rut helv. finan bol sem við gátum ekki staðist. Á honum stendur :

       NO
I don't want
a fu&%$ng
  tuk tuk                 (leigubíll)
   suit
 or massage
Thank you very much!

Þetta stendur bæði á ensku og Thailensku. Þess má til gamans geta að það eru jafnmargir leigubílar, klæðskerar og nuddkonur í thailandi og moskítóflugur og svífast þau einskis til að sanka að sér útlendingum eins og verðlaunagripum. Síðan við fjárfestum í þessum snilldarbolum hefur lif okkar batnað töluvert og Thailendingarnir að fíla bolinn. Er að hugsa um að framleiða boli sem stendur á

            NEI
    Ég er ekki með
viðbótarlífeyrissparnað
, ég hef engan áhuga
á að skipta um símafyrirtæki
og ég hef ekki tíma til að
       svara Gallup!
       Hypjaðu þig!

Hverjir myndu kaupa? Tek niður pantanir.

Skelltum okkur á jetski. Gerðum okkur ekki alveg grein fyrir svakalega ölduganginum sem er við eyjuna og köstuðumst i sjóinn eftir uþb 20 sekúndna skemmtisiglingu. Þar tapaði ég sólgleraugunum mínum og skemmdi úrið mitt fína. Farið hefur fé betra enda voru þetta bæði ódýrar eftirlíkingar geri ég ráð fyrir. Síðan eftir ekki svo langa ferð sáum vid svakalegasta svartský sem ég hef augum litið við sjóndeildarhringinn. Eitthvað úr Lord of The Rings. Ákváðum að leika okkur aðeins lengur áður en við héldum aftur á ströndina. Áður en við vissum af var skýið nánast fyrir ofan okkur og við lögðum sjókettinum á ströndina og héldum heim á leið. Á þeim tímapunkti var ströndin tóm enda leit út fyrir að heimsendir væri í nánd. Hlupum heim á hótel áður en óveðrið skall á.

 Um kvöldið fórum við á Rock City sem er töff veitingahús nálægt hótelinu okkar þar sem hægt er að fá alls kyns góðgæti með góðu undirspili. Þar gæddum við okkur á mexíkönskum kjúklingaréttum og í eftirrétt var svo sprengjan. Líklega það óhollasta og ógeðslegasta sem hægt er að setja inn fyrir sínar varir. Djúpsteikt snickers með ís. Mér fannst þetta svo fyndinn réttur að ég varð að prófaTounge

 fried_candy_bar

 Lékum okkur í pool og héngum þarna þar til hljómsveitirnar komu. Fyrst var School of Rock sem spilaði alls kyns rokkslagara. Síðan kom Kiss tribute band sem skilaði alls ekki góðri frammistöðu. Eftir það nenntum við ekki meir og fórum á hótelið. Ætlum að kíkja þangað aftur á morgun, þá verður einhver fest með góðri tónlist, ACDC tribute og fleira sætt.

 Adios

Helgi

 PS: Rut langar að : leigja vespu, fara á jetski og paragliding, og samkvæmt ferðabók sem við vorum að lesa má rekja langflest dauðsföll á eyjunni til þessara dægrastyttinga. Hinsvegar vill hún ekki koma nálægt því að fara í teygjustökk, sem er búið að vera starfrækt hérna í 16 ár og er með 0%slysatíðni.....how do you like that. Ég býst við að ef það er ekkert hættulegt þá er ekkert fútt í því Wink


Leidin til Phuket

Hallo

eftir LANGT og skritid ferdalag erum vid komin til Phuket. Vid akvadum ad taka ferju og rutu til Phuket tar sem tad var langtum odyrast. En  tegar i ferdalagid var komid var tetta miklu meira en 1 ruta og ferja. Vid byrjudum a ad fara i minibus sem er eins og vinnubillinn hans pabba sem er rafyrki. Ja minibus, svo ruta svo ferja, svo ruta, svo minibus, annars minibus og svo annar minibus og ta attum vid ad taka rutu ! A hverjum stad i minibus leidangrinum turftum vid ad keyra i 5 minutur og svo bida i 40 fara i annan 3 minutna runt og bida 1 klst. Tetta var svo mikid svindl allir ad reyna ad selja okkur einhverjar ferdir tegar vid stoppudum... En tegar vid attum ad fara i sidustu rutuna ta ofbaud einum raudhaedum stark sem var med okkur i minibusnum og stod upp i harinu a kellingunni sem var ad reyna ad reka okkur ut ur minibusnum. Svo skilja teir ekkert i ensku tegar madur er ad reyna ad kvarta eitthvad. Eftir mikid rifrildi tar sem hvorugur skildi hvorn  ta endadi med tvi ad minibussinn ok okkur til phuket. Tad var 100 ara madur sem keyrdi okkur og hann keyrdi ekki hradar en 70 km/klst svo tetta tok sinn tima. raudhausarnir lata ekki vada yfir sig :) ha Heida!

uff hvad madur var ordin pirradur a ollu tessum ogedslega FREKU svindlurum !

Tad erulika allir ad bjoda manni eitthvad allir vilja selja manni, tegar madur labbar nidur gotu ta eru an djoks svon 8-10 sem ganga upp ad manni og bjoda manni TAXI TAXI eda aka upp ad hlidina a manni og flauta. Svo eru adrir 8-10 sem bjoda manni Thai massage... og svo adrir 8 sem reyna ad fa mann til ad koma ad borda a sinum veitingarstad..... madur gerir ekki annad en ad segja no thank you nidur alla gotuna :)

jaeja en nuna erum vid komin Phuket og buin ad finna okkur svaka fint en odyrt hostel rett hja strondinni.

fyndid skilti sem vid keyrdum fram hja i gaer "drive fast, be careful" hehe!

Ja og vid erum buin ad far ibud tegar vid komum heim, Skógarbraut 1113 (Tree Lane)
Hlíðarhverfi  upp a velli. Sjibbi.... miklu betra ad hugsa til tess ad koma heim til islands og hafa stad til ad bua a :) ta vantar okkur bara ad redda okkur bil :)o

Godar kvedjur til allra heima

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband